Allir lesa

Allir lesa Það var góð stemning í bókasafninu þegar nokkrir nemendur í 5. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar lásu upp úr bókinni Minni líkur, meiri von sem

Fréttir

Allir lesa

Það var góð stemning í bókasafninu þegar nokkrir nemendur í 5. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar lásu upp úr bókinni Minni líkur, meiri von sem Forlagið gaf út fyrir nokkrum árum.Góðir lesarar þar á ferðinni og gaman verður að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Marjolijn Hof sýndi og sagði frá nýju verðlaunabókinni sinni sem gerist á Siglufirði og standa vonir til þess að sú bók verði þýdd á íslensku. Marjolijn dvaldi í Herhúsinu árið 2010 við ritstörf og hefur hugur hennar síðan þá verið hér. Lýsti hún því hve hrifin hún væri af staðnum og dáðist að því hvað væri að gerast hér og engin stöðnun í menningarmálunum og nefndi t.d.

Ljóðasetrið og Alþýðuhúsið. Rétt er að minna hér á átakið Allir lesa - sem er landsleikur í lestri. Á heimasíðu Bókasafns Fjallabyggðar er sagt frá átakinu og er fólk hvatt til að fara á heimasíðuna wwww.allirlesa.is og skrá sig í hópinn sem heitir "Fjallabyggð".

Myndir og texti Guðný Róbertsdóttir

Guðný Róberts

Guðný Róberts

Guðný Róberts

Guðný Róberts


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst