Anna Fält með tónleika í kvöld

Anna Fält með tónleika í kvöld Anna Fält dvelur í Herhúsinu þennan mánuðinn. Hún er finnsk þjóðlagasöngkona og músíkant og hefur um árabil haldið

Fréttir

Anna Fält með tónleika í kvöld

Anna Fält dvelur í Herhúsinu þennan mánuðinn.

Hún er finnsk þjóðlagasöngkona og músíkant og hefur um árabil haldið tónleika án undirleiks, jafnt í Svíþjóð, þar sem hún býr, og í Finnlandi en einnig víða annars staðar.

Hún hefur sérhæft sig í ólíkum sönghefðum, sænskum og finnskum, þar sem hún leitast við að sameina hina björtu skandinavísku og dimmu austur-evrópsku tóna. Tónleikar hennar eru óður til mannsraddarinnar – söngur engu líkur.  

Það er frítt inn á tónleikana og standa þeir yfir í u.þ.b. 45 mínútúr.

Sjá hér. 


Athugasemdir

24.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst