Björgunarsveitin Strákar var kölluð út í nótt. Myndir og myndband

Björgunarsveitin Strákar var kölluð út í nótt. Myndir og myndband Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði var kölluð út á öðrum tímanum í

Fréttir

Björgunarsveitin Strákar var kölluð út í nótt. Myndir og myndband

Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði var kölluð út á öðrum tímanum í nótt

 
Siglfirðingar eru búnir að finna allhressilega fyrir veðrinu í nótt og líklega hefur veðurofsinn haldið vöku fyrir mörgum. 
 
Björgunarsveitin Strákar var kölluð út á öðrum tímanum en þá var að fjúka skúrbygging í bænum auk þess sem ruslatunnur, rusl,grindverk og allt mögulegt og ómögulegt var fjúkandi út um allan bæ.
 
Ég kom við í hjá Björgunarsveitinni til þess að tékka á stöðunni en þá voru strákarnir að koma inn úr útkallinu og fengu sér einn kaffibolla áður en haldið var út í næsta verkefni. En það var að keyra um bæinn og ath. hvort ruslatunnurnar og annað lauslegt væri að valda tjóni.
 
Hvar í ósköpunum værum við ef við hefðum ekki Björgunarsveitirnar?
 
Hér eru svo nokkrar myndir og eitt stutt myndband til að sýna ykkur hvernig þetta var hjá strákunum.
 
björgunarsveitinÓmar Geira og Áki Vals í stjórnstöð.
 
björgunarsveitinMaggi í SR 
 
björgunarsveitinJón Hólm
 
björgunarsveitinHans Ragnar
 
björgunarsveitinHjalti Bergsteinn, Maggi Tomm og Ómar Geira.
 
björgunarsveitinÓðinn Freyr að fá sér kaffisopann. 
 
björgunarsveitinHjalti Bergsteinn.
 
björgunarsveitinSigurjón
 
björgunarsveitinSvo fóru þeir aftur af stað.
 
björgunarsveitinHér er ein sem fauk.
 
björgunarsveitinOg önnur.
 
Hér er svo örstutt myndband af því hvað Björgunarsveitirnar þurftu að glíma við í nótt.

 

Hér er svo slóðin á myndbandið fyrir þá sem eru með ipad og önnur verkfæri sem ekki geta spilað myndbandið beint af síðunni hjá okkur. https://www.youtube.com/watch?v=EVPvx5TTefQ&feature=youtu.be


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst