Brúðkaup á bryggjunni

Brúðkaup á bryggjunni Föstudaginn 15. maí kl. 17.00 mætti fríður hópur prúðbúinna gesta við smábátahöfnina á móts við Rauðkutorg. Tilefni þessa

Fréttir

Brúðkaup á bryggjunni

Brúðhjónin gefin saman
Brúðhjónin gefin saman

Föstudaginn 15. maí kl. 17.00 mætti fríður hópur prúðbúinna gesta við smábátahöfnina á móts við Rauðkutorg. Tilefni þessa mannfagnaðar var brúðkaup þeirra Kristjönu Elínar Helgudóttur og Kristins Halldórs Kristjánssonar frá Akureyri.

Séra Sigurður Ægisson gaf brúðhjónin saman í fallegri athöfn og voru brúðhjónin umvafin sínum nánustu sem mætt voru á bryggjuna til að samfagna með þeim. 

Kristjana Elín er fædd og uppalin hér á Siglufirði. Foreldrar hennar eru Helga Dóra Ottósdóttir og Erlingur Hjalti Garðarsson.


Litríkur og skemmtilegur atburður sem gladdi gesti og gangandi


Séra Sigurður Ægisson gefur brúðhjónin saman


Brúðarkossinn myndaður


Smábátahöfnin skartaði sínu fegursta

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Kristín Sigurjónsdóttir 


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst