Bruni á þrettándaballi á Allanum
Rýma þurfti skemmtistaðinn Allann nú í kvöld þegar upp kom bruni á staðnum. Brunakerfið fór í gang meðan á þrettándaballinu stóð og börn og foreldrar flýðu úr húsinu.
Árlega er diskótek haldið á Allanum fyrir ungdóminn eftir þrettándabrennuna á Siglufirði þar sem börn geta komið og dansað með álfum og tröllum og að sjálfsögðu með jólasveinunum. Að vanda var fjöldi manns á ballinu sem tók þó snökt enda að þessu sinni þegar eldur kom upp á staðnum.
Samkvæmt fyrstu heimildum hlaut enginn skaða af en börnin urðu þó hrædd og skelkuð í óðagotinu.
Athugasemdir