Dagur myndlistar 2016

Dagur myndlistar 2016 Opnun sýningar í Kompunni, opin vinnustofa. Ár hvert hefur Dagur myndlistar verið haldinn um land allt með opnum vinnustofum

Fréttir

Dagur myndlistar 2016

Opnun sýningar í Kompunni, opin vinnustofa.

Ár hvert hefur Dagur myndlistar verið haldinn um land allt með opnum vinnustofum listamanna. Í ár er hverjum listamanni gefið frjálst að hafa opið hús eftir því sem hentar hverjum og einum.

 


Laugardaginn 1. okt. kl. 14.00 - 18.00 verður opin vinnustofa hjá Aðalheiði S. Eysteinsdóttur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Einnig mun Aðalheiður opna sýningu í Kompunni á lágmyndum sem hún hefur verið að vinna undanfarið.
Myndröðina kalla Aðalheiður á milli vita, og sameinar hún á ýmsan hátt verk hennar undanfarin 25. ár.

Eigum góðan dag saman.

Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings, Egilssíld og Fiskkompaníið styðja menningarstarf í Alþýðuhúsinu.


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst