Discover The World flokkar Sigló Hótel með glæsilegum sérstæðum gistimöguleikum

Discover The World flokkar Sigló Hótel með glæsilegum sérstæðum gistimöguleikum "Frá ísilögðum fjörðum norður Íslands and snæviþöktum óbyggðum Sænska

Fréttir

Discover The World flokkar Sigló Hótel með glæsilegum sérstæðum gistimöguleikum

Sigló Hótel: Jón Steinar Ragnarsson
Sigló Hótel: Jón Steinar Ragnarsson

"Frá ísilögðum fjörðum norður Íslands and snæviþöktum óbyggðum Sænska Lapplands, á yfir 30 ára ferli í ferðalögum og skipulagningu á norðurhjara höfum við fundið nokkra virkilega framúrskarandi gistimöguleika til að njóta norðurljósanna á." Þetta segir í grein á heimasíðu Discover The World, einni stærstu og virtustu ferðaskrifstofu í Bretlandi sem hefur flokkað Sigló Hótel meðal einhverra glæsilegustu og sérstæðustu gististaði sem finna má á norðurslóðum.

Discover The World fylgist vel með öllu sem gerist á þeim svæðum sem þeir selja ferðir til en ferðaskrifstofan eykur áherslu sína á norður og austurland og er þessi grein hluti af því starfi. 

Á heimasíðunni segir enn frekar "Staðsett við höfnina á hinum sögufræga bæ, Siglufirði, útsýnið frá Sigló hótel er ótrúlegt. Frá dramatískum fjöllum að glitrandi fjörðum og ef þú sérð norðurljósin verður upplifunin engu lík". 

 

Greinina á Dicover the World má lesa í heild sinni hér.

https://www.discover-the-world.co.uk/blog/room-with-a-view?category_id=46 


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst