Ella leggur handbragð sitt á nýjan veitingastað

Ella leggur handbragð sitt á nýjan veitingastað Elín Þorsteinsdóttir, Ella, sem sá um innanhússhönnun Hannes Boy lagði hönd á plóg við hönnun glæsilegs

Fréttir

Ella leggur handbragð sitt á nýjan veitingastað

Ljósmynd www.veitingageirinn.is
Ljósmynd www.veitingageirinn.is

Elín Þorsteinsdóttir, Ella, sem sá um innanhússhönnun Hannes Boy lagði hönd á plóg við hönnun glæsilegs nýs veitingastaðar við höfnina í Reykjavík, Verbúð 11. 

Á vef veitingageiranns má lesa um glæsilegan veitingastaðinn sem leggur áherslu á fjölbreytta fiskrétti, þótt einnig megi finna afbragðs kjöt- og grænmetisrétti.

Eins og nafnið gefur til kynna er Verbúð 11 til húsa í verbúðunum við Gömlu höfnina í Reykjavík og þar hefur fiskverkunin Sindrafiskur verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu frá árinu 1986. Nú er svo komið að ættfaðirinn, Jón Sigurðsson, hyggst draga saman seglin í fiskverkuninni og langaði að finna húsnæðinu nýtt hlutverk. Þar sem fjölskyldan hefur áratugareynslu í öllu sem við kemur fiski lá beinast við að opna veitingastað sem sérhæfir sig í sjávarfangi, þar sem áherslan er lögð á ferskt og gott hráefni.

Þess má geta að fjölskyldan hefur átt og gert út bátinn Sindra RE-46 allt frá árinu 1977. Þegar báturinn er í landi geta gestir Verbúðar 11 séð hann við hafnarbakkann. Áhöfnin á Sindre RE-46 mun sjá Verbúð 11 fyrir hráefni.

Einvalalið veitingafólks hefur verið ráðið til starfa á Verbúð 11. Yfirmatreiðslumaður og veitingastjóri er Gunnar Ingi Elvarsson, veitingastjóri er Anna María Pétursdóttir, vaktstjóri er Jóhann Örn Ólafsson og rekstrarstjóri er Guðmundur Jónsson. Siglfirðingurinn Elín Þorsteinsdóttir sá um hönnun staðarins og arkitekt hússins er Ívar Örn Guðmundsson.

Nánar má lesa um staðinn á www.veitingageirinn.is sem og á heimasíðunni www.verbud11.is. 


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst