Elsku Siglfirðingar

Elsku Siglfirðingar Við í Ófærð kveðjum nú þennan bæ og íbúa hans með söknuði. Á öllum tímum sólarhringsins síðustu mánuði hefur hjálpsemi ykkar,

Fréttir

Elsku Siglfirðingar

Við í Ófærð kveðjum nú þennan bæ og íbúa hans með söknuði.

Á öllum tímum sólarhringsins síðustu mánuði hefur hjálpsemi ykkar, þolinmæði, traust, skilningur og velvild í okkar garð skilað sér og verið ómetanleg stoð í þessu verkefni.

Þið hafið öll sem eitt gert dvöl okkar hina ánægjulegustu og það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast ykkur og fallega firðinum ykkar.

Þið getið haft samband við okkur í gegnum tölvupóst - eidur@rvkstudios.is séu einhver óleyst mál eða lausir endar.

Takk fyrir að leyfa okkur að dvelja hér með ykkur þennan tíma - þið hafið svo sannarlega látið okkur líða eins og heima hjá okkur.

Ást og virðing, 
Ófærðar fjölskyldan


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst