Fundur hjá Eining-Iðju í Hofi

Fundur hjá Eining-Iðju í Hofi Nú stendur yfir í Hofi á Akureyri fundur hjá Einingu-Iðju þar sem rúmlega 100 félagsmenn fara yfir ýmis mál varðandi

Fréttir

Fundur hjá Eining-Iðju í Hofi

Mynd fengin af vef Einingar-Iðju
Mynd fengin af vef Einingar-Iðju
Nú stendur yfir í Hofi á Akureyri fundur hjá Einingu-Iðju þar sem rúmlega 100 félagsmenn fara yfir ýmis mál varðandi kjaraviðræður sem framundan eru. Um er að ræða sjöunda fundinn sem félagið hefur staðið fyrir á öllu félagssvæðinu í vikunni. Fyrstu fundirnir sex voru haldnir á Akureyri, Grenivík, Hrísey, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði og voru opnir öllum félagsmönnum. Þessir fundir eru m.a. tækifæri fyrir alla félagsmenn til að koma fram með hugmyndir að launakröfum félagsins í kröfugerð sem send verður til samninganefndar Starfsgreinafélagsins í næstu viku.

Fengið af vef Einingar-Iðju

Sjá nánar um fundinn á vef Einingar-Iðju hér.

Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst