Fyrsta veislan

Fyrsta veislan Í síðustu viku var þeim merka áfanga náð að klára að steypa neðri plötuna í Hótel Sunnu. Í því tilefni var blásið til fyrstu veislunnar í

Fréttir

Fyrsta veislan

Fyrsta veislan. Ljósmynd GSG
Fyrsta veislan. Ljósmynd GSG

Í síðustu viku var þeim merka áfanga náð að klára að steypa neðri plötuna í Hótel Sunnu. Í því tilefni var blásið til fyrstu veislunnar í hótelinu þar sem veitingasalurinn var dekkaður með kræsingum, gosi og öðru sterkara fyrir þá sem unnið hafa að verkinu á staðnum.

Nú, þegar platan hefur verið steypt fer hótelið fljótt að taka á sig heildarmynd og er stefnt að því að það verði að fullu orðið fokhelt í lok september. Klæðningin er farin að gera vart við sig á húsinu og vinna innandyra hefur núþegar hafist í fyrsta áfanga hótelsins og fjölgar því starfsafli á svæðinu töluvert.

 

Fyrsta veislan

Gunnar St Ólafsson verkfræðingur og byggingastjóri Hótel Sunnu

Fyrsta veislan

Séð af efri hæðinni.

Fyrsta veislan

Kvæðamannafélagið mætti á svæðið.


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst