Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016 er hafin á

Fréttir

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016 er hafin á skrifstofum sýslumannsins á Norðurlandi eystra á Akureyri, Húsavík, Siglufirði og Dalvík.

 

Að þessu sinni er jafnframt unnt að greiða atkvæði utankjörfundar hjá kjörstjórum sýslumanns á skrifstofum sveitarfélaganna Grýtubakkahrepps, Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps og Langanesbyggðar.  Enn fremur á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn og á skrifstofu Akureyrarbæjar í Hrísey.  Þá fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Grímsey fram hjá kjörstjóra í Miðtúni.

 

Afgreiðslutími vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar er á almennum opnunartíma hverrar skrifstofu. Frá 13. júní verður þó unnt að greiða atkvæði á skrifstofu embættisins á Akureyri til kl. 18:30 virka daga. Jafnframt verður hægt að kjósa laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. júní á skrifstofum embættisins á Akureyri, Húsavík og Siglufirði. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunum www.syslumenn.is og www.kosning.is. 

 

Kjósendur eru minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis.

 

8. júní 2016

 

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst