Fjöruhreinsun í Fjörðum

Fjöruhreinsun í Fjörðum Sunnudaginn næstkomandi, 5. júní, Sjómannadaginn 2016, mun þyrluskíða-fyrirtækið Arctic Heli Skiing standa fyrir hreinsunarátaki á

Fréttir

Fjöruhreinsun í Fjörðum

Sunnudaginn næstkomandi, 5. júní, Sjómannadaginn 2016, mun þyrluskíða-fyrirtækið Arctic Heli Skiing standa fyrir hreinsunarátaki á fjörum óbyggða Grýtubakkahrepps í samvinnu við sveitarfélagið, fjölda fyrirtækja og félagasamtök á svæðinu.

Er hér um þjóðþrifaverk að ræða þar sem fjörur svæðisins hafa aldrei verið svo markvisst hreinsaðar fyrr og er þar mikið magn plastúrgangs sem ekki einungis hefur neikvæð sjónræn áhrif á þessa ótrúlegu óspilltu náttúruparadís heldur einnig afar slæm áhrif á allt lífríki svæðisins í heild.

Það er þekkt staðreynd að plastúrgangur í sjó dregur fjölda lífvera til dauða á ári hverju þ.m.t. fugla sem flækjast í netadræsum og hvali sem innbyrða stærri plaststykki og deyja hægum dauðdaga. Einnig hefur komið í ljós á undanförnum árum að hið hæga niðurbrot plastefna í náttúrunni umbreytir því í svokölluð örplastefni sem eru í dag talin afar heilsuspillandi.

Þyrlur frá fyrirtækinu Norðurflugi verða nýttar til að ferja mannskap og stórsekki undir rusl á afskektari og ill-aðgengilegri staði svo sem Kjálkanes og Keflavík en Hvalaskoðunarfyrirtækið Arctic Sea Tours á Dalvík mun flytja meginþorra mannskaps frá Grenivík í Þorgeirsfjörð þaðan sem fólk mun dreifa sér til hreinsunarstarfa m.a yfir í Hvalvatnsfjörð með aðstoð björgunarsveitarinnar Ægis á Grenivík.

Þar sem að stærsti hluti þessa svæðis er einungis aðgengilegur yfir hásumarið af gangandi fólki eða af sjó þegar vel viðrar er afar erfitt að standa fyrir slíkri alsherjar hreinsun nema með aðkomu þyrlunnar sem nýtt verður til að hífa allt ruslið til byggða á Grenivík þar sem starfsmenn Gámaþjónustu Norðurlands munu taka á móti því og flokka.

En þarna verður gleðin einnig við völd og í lok dags verður slegið upp alsherjar grillveislu á Þönglabakka í Þorgeirsfirði þar sem veitingastaðurinn Kontorinn á Grenivík ásamt Kjarnafæði bjóða þreyttum en glöðum strandhreinsitæknum upp á steikur að hætti hússins. Má fastlega gera ráð fyrir að þar verði á boðstólum afurðir Fjárræktarfélags Grýtubakkahrepps bornar fram af heiðursfólkinu í Ferðafélagi Fjörðunga og Karlafélaginu Hallsteini á Grenivík.

 

 Upplýsingar um nánara skipulag, skráningu fólks í ferðina og tímasetningar verður að finna á www.grenivik.is næstu daga.


Athugasemdir

24.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst