Molar um málfar........

Molar um málfar........ Eiður Guðnason fyrrverandi alþingismaður með fleiru, heldur úti mjög fróðlegri bloggsíðu, þar sem hann tekur fyrir ýmislegt í

Fréttir

Molar um málfar........

Eiður Guðnason fyrrverandi alþingismaður með fleiru, heldur úti mjög fróðlegri bloggsíðu, þar sem hann tekur fyrir ýmislegt í málfari okkar og skrifum, sérstaklega þó því sem fram kemur í fjölmiðlum hvort heldur er í töluðum eða skrifuðum flutningi, td. fréttum.

Sá sem þessa línur skrifar hefur margt lært, eða reynt að festa sér í minni það sem hann bendir margsinnis á að betur mætti fara varðandi það efni sem ætlað er til birtingar, efni sem og stundum verður broslegt í augum og eyrum, þeirra sem vita betur, sem og stundum ef til vill einnig sjálfra höfunda verkanna, eftirá.

Eiður hlífir engum, og verða margir fréttamenn og málflytjendur illilega fyrir barðinu á honum. 

Bloggið hans er ekki aðeins fróðleg lesning, heldur einnig mjög skemmtilegt lesefni.

Tengill til síðu hans er: >>  http://esgesg.blog.is/blog/esgesg/


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst