Árshátíð Slysavarnadeildar kvenna

Árshátíð Slysavarnadeildar kvenna Árshátíð Slysavarnadeildar kvenna í Ólafsfirði verður haldin í Tjarnarborg laugardaginn 5. janúar og hefst með borðhaldi

Fréttir

Árshátíð Slysavarnadeildar kvenna

Árshátíð Slysavarnadeildar kvenna í Ólafsfirði verður haldin í Tjarnarborg laugardaginn 5. janúar og hefst með borðhaldi klukkan 19:30.  (Húsið verður opnað klukkan 19:00) Glæsilegt hlaðborð frá Greifanum, sem inniheldur kræsingar við allra hæfi.

´70s Show með mörgum frábærum tónlistarperlum frá áttunda áratugnum s.s. ABBA Smokie Stones o.fl. Hljómsveitin Tvöföld áhrif leikur fyrir dansi til klukkan 2:00 Árshátíðin er opin öllu slysavarnafólki í Fjallabyggð og gestum. Miðaverð aðeins 6500 krónur. Dustum nú rykið af síðkjólum og öðrum samkvæmisfatnaði, mætum öll í okkar fínasta pússi og skemmtum okkur saman eina góða kvöldstund.

Athugið 16 ára aldurstakmark – Ekki verður opinn bar en hægt verður að kaupa gos á staðnum.

Miðapantanir í símum 8679362 (Magga) og 8493536 (Kristjana) Miðana þarf að panta í síðasta lagi 2. janúar.

Nefndin


Athugasemdir

09.júní 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst