Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson með tónleika í Alþýðuhúsinu

Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson með tónleika í Alþýðuhúsinu Laugardaginn 10. okt. kl. 21.00 verða Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson með tónleika

Fréttir

Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson með tónleika í Alþýðuhúsinu

Laugardaginn 10. okt. kl. 21.00 verða Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson með tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Ómar Guðjónsson  & Tómas R. Einarsson

Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hafa spilað saman í áratug, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum. Innanlands og utan: Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana, Washington DC....  

Nú hafa þeir gert langþráðan draum að veruleika: að taka upp plötu þar sem þeir semja hvor fyrir annan. Þar er músíkölsk samræða æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður.

Upptakan fór fram á Kolsstöðum í Borgarfirði, á sólríkum sumardögum þar sem hvít jöklabreiða bar við augu út um upptökuglugga ásamt hrauni og blómstrandi kjarri.

BRÆÐRALAG   Um land allt!

Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson munu kynna plötuna Bræðralag á  tónleikaferð um landið í haust. Tónleikarnir verða nítján talsins, en þeir fyrstu verða í Garðaholti, Garðabæ, sunnudagskvöldið 27. september, kl. 20.30,  og tónleikaferðinni lýkur svo í Iðnó, Reykjavík, fimmtudagskvöldið 15. október kl. 20.30

Fjallabyggð, Uppbyggingarsjóður og Fiskbúð Siglufjarðar styðja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem er vinnustofa og heimili Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur.

Tekið á móti frjálsum framlögum til listamannana. Upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091 

Frekari upplýsingar:

Netföng:

omargudjons@gmail.com

tomas.r@simnet.is

Símar:

Ómar: 898 9078

 

Tómas: 898 1183


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst