Tónleikar - Skúli mennski ásamt hljómsveit

Tónleikar - Skúli mennski ásamt hljómsveit Fjörugir búgí og blústónleikar með Skúla mennska ásamt hljómsveit. Kaffi Rauðku föstudaginn 15.ágúst

Fréttir

Tónleikar - Skúli mennski ásamt hljómsveit

Fjörugir búgí og blústónleikar með Skúla mennska ásamt hljómsveit. 

Kaffi Rauðku föstudaginn 15.ágúst klukkan 22:00
Miðaverð 1.500kr
Aldurstakmark 18 ár

Skúli mennski er Ísfirðingur að upplagi og eðlisfari. Hann hefur fengist við að semja og flytja tónlist í hartnær tíu ár og sækir innblástur úr öllum áttum samfélagsins. Eftir hefðbundna grunn- og menntaskólagöngu að meðtöldu innliti í Tónlistaskólann á Ísafirði hefur Skúli numið við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað, Söngskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands með misjöfnum árangri. Skúli hefur starfað með fólki úr mörgum listgreinum, spilað á hátíðum hérlendis og erlendis. Skúli kemur einnig reglulega fram sem trúbador. Hann er söngvari bítbandsins Sökudólgarnir sem gaf út diskinn Líf og fjör árið 2008. Í apríl 2010 kom út platan Skúli mennski og hljómsveitin Grjót með Skúla ásamt hljómsveitinni Grjót.


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst