Ævintýrið rúllar í gang. Myndir

Ævintýrið rúllar í gang. Myndir Allskonar faratæki, húsbílar, húsvagnar og tjaldvagnar hafa verið að rúlla inn í bæinn síðan í gær. Skemmtileg smá þorp af

Fréttir

Ævintýrið rúllar í gang. Myndir

Fullt á tjaldstæðinu í miðbænum
Fullt á tjaldstæðinu í miðbænum

Allskonar faratæki, húsbílar, húsvagnar og tjaldvagnar hafa verið að rúlla inn í bæinn síðan í gær. Skemmtileg smá þorp af hinum ýmsu vistaverum hafa myndast hingað og þangað um bæinn. 

Margir brottfluttir eru komnir heim, gistiheimili að fyllast og sumarhús líka.  Þetta er ekta bæjarhátíð og það munu allir skemmta sér vel og stærsta skemmtunin liggur í rauninni í að fá að hitta fólk sem maður hefur ekki sé lengi.

Tvo noske gutter og ein jänte står og snacker skit i framfor Islands posesicentrum. (Hemmi Einars og Raggi Mikk og frú)

Skemmtilegt þorp á Ramma lóð

Búinn að koma sér þægilega fyrir undir bökkunum, allt klárt á Torginu fyrir skemmtun dagsins.

Búið til skjólgarður úr þremur vögnum.

Húsbílar í röðum undir Sunnubakka.

Myndir og texti:
Jón Ólafur Björgvinsson
Fréttasími: 842 - 0089 


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst