Málþing um myndlist í Fjallabyggð 30. jan. 2016

Málþing um myndlist í Fjallabyggð 30. jan. 2016 Laugardaginn 30. jan. kl. 14.00 – 16.30 efnir Alþýðuhúsið á Siglufirði til málþings um myndlist í

Fréttir

Málþing um myndlist í Fjallabyggð 30. jan. 2016

Laugardaginn 30. jan. kl. 14.00 – 16.30 efnir Alþýðuhúsið á Siglufirði til málþings um myndlist í Fjallabyggð.

Á undanförnum fimm árum hefur sýningarhald, fyrirlestrar, kennsla, samstarfsverkefni og heimsóknir listamanna til Fjallabyggðar stóraukist og  vegna tilkomu Listhússins á Ólafsfirði, Menntaskólans á Tröllaskaga, Herhússins á Siglufirði og Alþýðuhússins á Siglufirði, hafa opnast nýjir og áhugaverðir möguleikar í bæjarfélaginu.  Starfsemi þessi kemur sem viðbót við annars ágætis sýningarhald á vegum Rauðku, Síldarminjasafnsins, sal Ráðhússins á Siglufirði og annara einkaaðila/gallerýa.  Einnig hefur Herhúsið verið í notkun síðan 2005.

Alla jafna eru myndlistasýningar í Kopmunni Alþýðuhúsinu, Herhúsinu í lok listamannadvalar,  í Listhúsinu og gjörningar í sal Alþýðuhússins.. Í bæjarfélaginu eru 6-8 erlendir og innlendir listamenn í gestavinnustofum á hverjum tíma og fjölgar upp í 25 manns í ákveðnum verkefnum nokkrum sinnum á ári.  Fjöldi manns  eru í listnámi og  ýmsar uppákomur og sýningar í öðrum sölum af og til.  

Gestum fer fjölgandi ár frá ári sem einnig kunna æ betur að meta blómlegt listalíf.

 Ýmsir listamenn sem dvalið hafa um stund við verkefni í bæjarfélaginu hafa fest kaup á húsnæði og aðrir koma reglulega til lengri eða skemmri dvalar.

Fjöldi listamanna sem stunda list sína fullu starfi eru búsettir eða eiga hús í Fjallabyggð og setja svip sinn á samfélagið.

Á þessu málþingi verður fókusinn á myndlist,   Gott verður að fá einhverskonar heildarmynd yfir það sem í boði er, umfang, stöðu og hvert stefnir.

Dagskráin er sem hér segir, með fyrirvara um einhverjar mín. til og frá.

kl. 14.00   Aðalheiður S. Eysteinsdóttir ,  Alþýðuhúsið- Kompan, að koma heim.

kl. 14.15   Lára Stefánsdóttir,   Listnám í heimabyggð..

kl. 14.30   Steinunn María Sveinsdóttir,   Myndlist í Fjallabyggð.

kl. 14.45   Alice Liu,  From 1 to 25: the development of Listhus in 5 years.

kl. 15.00  Kaffiveitingar 

kl. 15.15  Logi Már Einarsson,  Myndlist og samfélag.

kl. 15.30  Arnar Ómarsson,  Reitir.

kl. 15.45  Guðný Róbertsdóttir,  Herhúsið.

kl. 16.00  Opnar umræður.

Málþingið er öllum opið,  og eru allir hvattir til að taka þátt sem láta sig málið varða. Ekkert þátttökugjald.

Allar upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð, Egilssíld og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði


Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst