Stormur á Siglufirði

Stormur á Siglufirði Laugardaginn 12. mars gekk yfir landið sunnan stormur með 18-28 metrum á sekúndu. Fór að aukast vindhraði hér á Siglufirði um

Fréttir

Stormur á Siglufirði

Særok
Særok

Laugardaginn 12. mars gekk yfir landið sunnan stormur með 18-28 metrum á sekúndu.
Fór að aukast vindhraði hér á Siglufirði um hádegi og gekk niður með kvöldinu.
Ruku upp snarpar kviður svo varla var stætt hér á tímabili og eins og einn góður sagði, ansi fer lognið hratt yfir hér í bæ.

Aðvörun gekk yfir vegna vindkviða á Siglufjarðarvegi en engin óhöpp urðu í umferðinni né eignum svo best sé vitað. 

Það gefur á bátinn

Veðurstofa Íslands spáir rysjóttu en mildu veðri framundan, í dag er bjart og gott veður hér í firðinum fagra. 

Sveinn Þorsteinsson brá sér út með myndavélina og tók þessar fínu myndir af særokinu og gaf lesendum Siglo.is góðfúslegt leyfi til að njóta þeirra.

Stórstreymt

Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Sveinn Þorsteinsson 

 


Athugasemdir

18.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst