Fjallabyggð Páskadagskrá - 2014

Fjallabyggð Páskadagskrá - 2014 17-18-19-20

Fréttir

Fjallabyggð Páskadagskrá - 2014

17. apríl – Skírdagur:
 
Kl. 10:00 – 16:00 Skíðasvæði Skarðsdal, Siglufirði. Fjallafjör um páskana: Leikvöllur. Leikjabraut, pallar, hóla- og bobbbraut, giljabraut og fl. Skíðagöngumót í Fljótum.
Kl. 10:00 Íhugun og útivera - Ganga kringum Ólafsfjarðarvatn. Lagt af stað frá Ólafsfjarðarkirkju.  Kaffi og með því í safnaðarheimilinu að lokinni göngu.
 
Kl. 12:00 – 20:00 Kaffi Rauðka - Opið 
 
Kl. 13:00 – 18:00 Allinn Sportbar – Listasýning – Svarthvítir karakterar. Jóa Halladóttir sýnir myndir af frægum karakterum sem hún hefur unnið á striga. Þetta er hennar fyrsta sýning. 
Kl. 14:00 – 18:00 Ljósmyndasýning – Gallerí Rauðku (Bláa húsið).
Tólf félagar í Ljósmyndaklúbbi Fjallabyggðar sýnar myndir sínar um páskahelgina. 
Á sýningunni verða myndir sem tengjast vetrinum, ásamt öðru efni.


Kl. 14:00 – 17:00 Vinnustofa Abbýjar Aðalgötu 13. Listsýning - akrílmyndir á striga eftir Abbý og eru fuglar í aðalhlutverki á verkunum. 

 
Kl. 18:00 – 22:00 Hannes Boy - Opið 
 
Kl. 20:00 Kertamessa í Siglufjarðarkirkju. Altarisganga.
 
Kl. 20:00 Hærra minn Guð - Tónlistarstund í Ólafsfjarðarkirkju.  Hjónin Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson syngja sálma og önnur hugljúf lög. Ave Kara Tonisson leikur á orgelið –  Altarisganga með öðru sniði en venjulega. 
 
Kl. 21:00 Rauðka: Tónleikar með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna. 
 
18. apríl – Föstudagurinn langi:
 
Kl. 10:00 – 16:00 Skíðasvæði Skarðsdal, Siglufirði. Fjallafjör um páskana: Leikvöllur. Leikjabraut, pallar, hóla- og bobbbraut, giljabraut og fl
Kl. 11:00 Lestur Passíusálma í Ólafsfjarðarkirkju. Gott að koma og hlusta á nágranna og vini lesa 
og fá sér kaffi í safnaðarheimilinu.
 
Kl. 12:00 Alþjóðlega Ofurtröllamótið, Super Troll Ski Race – Fjallaskíðamót. Mótið hefst í Fljótum og verður gengið frá Heljartröð yfir Siglufjarðarskarð í átt að Illviðrishnjúki, meðfram skíðasvæðinu í Skarðsdal og niður til Siglufjarðar.

Kl. 12:00 – 00:00 Kaffi Rauðka – Opið. Trúbador spilar frá kl. 22:00
 
Kl. 14:00 – 17:00 Ljósmyndasýning – Gallerí Rauðku (Bláa húsið).
Kl. 15:00 – 18:00 Gjörninga- og uppákomudagskrá í Alþýðuhúsinu.
Ýmsir listamenn stíga á stokk, ungir og eldri, reyndir og óreyndir. Meðal annarra: 
Arna Valsdóttir, Örlygur Kristfinnsson, Victor Ocares, Hekla Björt Helgadóttir, Georg Óskar Giannakoudakis, Freyja Reynisdóttir, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Anna Elionora Olsen Rosing.
 
Kl. 16:00 Paramót í blaki, íþróttahúsinu Siglufirði.
Kl. 16:00 – 19:00 Allinn Sportbar – Listasýning – Svarthvítir karakterar. Jóa Halladóttir sýnir myndir af frægum karakterum sem hún hefur unnið á striga. Þetta er hennar fyrsta sýning.

Kl. 17:00 Höllin - veitingahús Ólafsfirði. FIFA-mót. . Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 2 efstu sætin. Skráning í s: 466-4000/663-6886/868-7788 
Mótsgjaldið eru 2.000 krónur og innifalið í því er pizzahlaðborð og gos.
 
Kl. 18:00 – 22:00 Hannes Boy - Opið 
 
Kl. 20:00 Ólafsfjarðarkirkja. Kvöldvaka við krossinn. Kirkjukórinn syngur, lesið úr píslarsögunni og flutt verða sjö orð Krists á krossinum.
 
Kl. 00:00 Fíflagangur og Fjör í Fjallabyggð. Skemmtidagskrá í Allanum. Fram koma: Eva Karlotta, Finni Hauks, Steini Sveins, Hófí, Bóbó, Tommi Kára, Rabbi í Gautum, Fílapenslarnir Finni, Tommi og Steini. Verð: 3.000 kr.
Eftir skemmtun verður dúndurball með hljómsveitinni NoName fram eftir nóttu.  
 
19. apríl - laugardagur:

Kl. 10:00 – 16:00 Skíðasvæði Skarðsdal, Siglufirði. Fjallafjör um páskana: Leikvöllur. Leikjabraut, pallar, hóla- og bobbbraut, giljabraut og fl. Fjölskylduþrautabraut. Lifandi tónlist við skíðaskálann.
Kl. 11:00 – 15:00 Vinnustofa Abbýjar Aðalgötu 13. Listsýning - akrílmyndir á striga eftir Abbý og eru fuglar í aðalhlutverki á verkunum.
Kl. 12:00 – 20:00 Kaffi Rauðka - Opið 

Kl. 14:00 – 17:00 Ljósmyndasýning – Gallerí Rauðku (Bláa húsið).
Kl. 16:00 – 19:00 Allinn Sportbar – Listasýning – Svarthvítir karakterar. Jóa Halladóttir sýnir myndir af frægum karakterum sem hún hefur unnið á striga. Þetta er hennar fyrsta sýning.
 
Kl.  18:00 – 22:00 Hannes Boy - Opið 
 
Kl. 21:00 Rauðka: Tónleikar/skemmtun Siglfirsk sönglög með Gómum. Að lokinni skemmtun verður ball með Stúlla og hinn Dúinn. Verð: 2.500 kr. tónleikar og ball.  Verð: 1.500 kr. á dansleikinni.
 
Kl. 21:00 Fíflagangur og Fjör í Fjallabyggð. Skemmtidagskrá í Allanum. Fram koma: Eva Karlotta, Finni Hauks, Steini Sveins, Hófí, Bóbó, Tommi Kára, Rabbi í Gautum, Fílapenslarnir Finni, Tommi og Steini.  Verð: 3.000 kr. 
Eftir skemmtun verður dúndurball með hljómsveitinni NoName fram eftir nóttu.  
 
20. apríl - Páskadagur:

Kl. 08:00 Hátíðarguðsþjónusta í Siglufjarðarkirkju. Veisla í safnaðarheimilinu að henni lokinni, í boði Systrafélags Siglufjarðarkirkju.
 
Kl. 09:00 Hátíðarguðsþjónusta í Ólafsfjarðarkirkju. Kaffi og páskaegg í safnaðarheimilinu. 
 
Kl. 10:00 – 16:00 Skíðasvæði Skarðsdal, Siglufirði. Fjallafjör um páskana: Leikvöllur. Leikjabraut, pallar, hólar, bobbraut, giljabraut og fl. Páskaeggjabraut fyrir 10 ára og yngri kl 13:00. Gönguleið upp á Súlur.
 
Kl. 10:30 Helgistund á sjúkradeild HSF.
 
Kl. 12:00 – 20:00 Kaffi Rauðka – Opið. 

Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á Hornbrekku.
 
Kl. 14:00 – 17:00 Ljósmyndasýning – Gallerí Rauðku (Bláa húsið).
 
21. apríl – Annar í páskum:
 
Kl. 10:00 – 16:00 Skíðasvæði Skarðsdal, Siglufirði. Fjallafjör um páskana: Bara njóta lífsins og skíða um allt fjall. Veitngasala alla daga í Skíðaskálanum. Göngubraut á Hólssvæði alla daga.
 
Kl. 14:00 – 17:00 Vinnustofa Abbýjar Aðalgötu 13. Listsýning - akrílmyndir á striga eftir Abbý og eru fuglar í aðalhlutverki á verkunum.
 
Kl. 16:00 – 19:00 Allinn Sportbar – Listasýning – Svarthvítir karakterar. Jóa Halladóttir sýnir myndir af frægum karakterum sem hún hefur unnið á striga.
 
sjá 
 
Sjá einnig á vef Fjallabyggðar hér.
 
Gleðilega páska.

Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst