Hamar - KF!

Hamar - KF! Þá er komið að lokaleik sumarsins hjá meistaraflokki karla en hann fer fram á Grýluvellinum í Hveragerði laugardaginn 22.

Fréttir

Hamar - KF!

Þá er komið að lokaleik sumarsins hjá meistaraflokki karla en hann fer fram á Grýluvellinum í Hveragerði laugardaginn 22. september klukkan 14:00.

Í undanförnum leikjum sem leiknir hafa verið í Reykjavík eða í nágrenni við Reykjavík hafa strákarnir fengið gríðarlega góðan stuðning og í þessum leik má ekkert annað vera uppi á teningnum!

Við hvetjum alla til þess að skella sér smá rúnt til Hveragerðis á þennan sannkallaða stórleik og styðja rækilega við bakið á strákunum! Árangur þeirra í sumar hefur verið virkilega góður og því biðlum við til áhorfenda að fjölmenna á völlinn, fylla bílana, hringja í vini og ættingja og ekki skilja neinn eftir!

Klukkan 07:00 fer rúta af stað frá Fjallabyggð með nokkuð stóran hóp stuðningsmanna og er áætlað að hún lendi í Hveragerði á milli 13:00 og 14:00. Ef við fáum sömu mætingu frá stuðningsmönnum búsettum á höfuðborgarsvæðinu og til dæmis í leikinn á móti HK þá verður þetta glæsilegt!

Það eru nú aðeins 10 sæti laus í sætaferðina sem á aðfara úr Fjallabyggð suður. Þannig að það fer hver að verða síðastur að skrá sig.... möguleikinn að sjá KF fara upp um deild hefur ekki gerst áður í annars frekar stuttri sögu KF. Koma svo stuðningsmenn KF...látið þetta tækifæri ekki fram hjá ykkur fara það verður stuð í rútunni.

Allir á völlinn!

Texti og mynd: Aðsend




Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst