Hentistefna verðbólguhræddra Íslendinga

Hentistefna verðbólguhræddra Íslendinga Íslendingum virðist, í orði, vera illa við verðbólgu. En samt ekki alla verðbólgu. Ein sérstök verðbólga virðist

Fréttir

Hentistefna verðbólguhræddra Íslendinga

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson
Íslendingum virðist, í orði, vera illa við verðbólgu. En samt ekki alla verðbólgu. Ein sérstök verðbólga virðist eiga meiri rétt á sér hjá mörgum á Íslandi en önnur. Það er húsnæðisverðbólgan. Flestir Íslendingar vilja að fasteignir þeirra hækki og hækki í verði, sérstaklega eftir að þeir hafa hafa keypt hana. En þeim er samt illa við að matvara og lífsnauðsynjar hækki í verði. Það er helst vegna þess að ekki er hægt að veðsetja ísskápinn og heldur ekki frystikistuna góðu.Þegar fasteignir Íslendinga hækka í verði þá gerist eitt af tvennu. A) menn fyllast óánægju með háu fasteignagjöldin, eða, B) þeir fyllast ánægju og finnst þeir vera orðnir ríkari. Þegar það gerist fara þeir út að slá, ekki grasið, heldur slá lán út á eignamyndunina sem húsnæðisverðbólgan bjó til. Á þeirri stundu dettur þeim ekki í hug að lánaslátta ríkidæmisverðbólgu þeirra muni valda verðbólgu annars staðar í hagkerfinu. En það er einmitt þessi verðbólga sem er að valda mönnum höldnum stöðugleika-fetishisisma og evrópskum verðbólgunasisma nokkurs konar hjartaáfalli. Þessir sjá núna ESB sem bjargvætt.

Gjaldþrot hlutafélaga í hvjerum mánuði í Danmörku frá janúar 1979 
til ágúst 2010

Gjaldþrot hlutafélaga í hverjum mánuði í Danmörku frá janúar 1979 til ágúst 2010

Stöðugleika fetishistar Brussels og evrópskir verðbólgunasistar öldrunarhagkerfa ESB drífa sig því í gang með að koma verðbólgunni, sem átti ekki að geta  átt sér stað undir galdramyntinni, fyrir kattarnef. 

Tvennt er þá gert samkvæmt læknisráði Brussels: allir eiga að hætta einkaneyslu og lántökum og fara í það að borga niður gömlu lánin sín - þetta er a.m.k það sem menn halda að sé nú þegar í gangi í Evrópu og jafnvel víðar. En þetta eru hrapalleg misráð og rangar ályktanir, því það sem er að gerast núna og sem menn halda að sé ekki að gerast núna er þetta:
Nauðungaruppboð húsnæðis í Danmörku í hverjum mánuði frá janúar 
1993 til águst 2010

Nauðungaruppboð húsnæðis í Danmörku í hverjum mánuði frá janúar 1993 til águst 2010

 1) Ef allir fara í það að borga niður lánin sín á sama tíma þá falla verðin, líka húsnæðisverðin. En það gera lánin þeirra hins vegar ekki. Við þessa verðhjöðnun mun skuldahlutfall skuldara á móti eignum bara hækka. Ergo: skuldarar munu fyrir vikið skulda ennþá meira sem hlutfall af eignum sínum. Laun þeirra munu líka lækka og því mun greiðslubyrði þeirra hækka sem hlutfall af ráðstöfunartekjum. 

2) Þegar þetta ferli hófst þá sáu menn að skuldahlutfall í hagkerfinu byrjaði að smá lækka. En það gerðist einungis vegna þess að svo margir eru að fara á hausinn. Ekki vegna þess að þeir hafa verið að borga niður skuldir. Þeir verða bust í stað þess að borga niður skuldir. Þetta er það verst hugsanlega sem getur gerst í heiminum í dag. Þetta mun steinrota alla eftirspurn og koma af stað nýrri kollsteypu.   
Eignabólur

Eignabólur

Hin óhagganlega staðreynd er sú að hvergi í heiminum varð til eins mikil og slæm fasteignaverðbólga og sú sem gerðist fyrir framan nefið á seðlabanka Evrópusambandsins á evrusvæðinu. Og þessi húsnæðisverðbólga á evrusvæðinu var að engu leyti mannfjöldaknúin (demography driven). Hún var eingöngu spákaupmennskuknúin. Massíf útpumpun lána með veði í fasteignum varð reyndar svo hrottaleg að efnahagur nokkurra landa evrusvæðis var sprengdur í tætlur í því ferli. Allt með hjálp seðlabanka Evrópusambandsins; í sjálfri galdramyntinni; í evrum. 

Vegna alls þessa ættu menn í dag að vera dálítið þakklátir fyrir verðbólgu. Hún er merki þess að það er kannski ennþá smá lífsmark í íslenska hagkerfinu og sem er ekki Evrópusambandslegt elliheimili. Það eina sem Íslandi vantar núna er ný og betri ríkisstjórn og að innlimunarumsókn lýðveldis okkar inn í kolanámu Evrópusambandsins verði dregin til baka samstundis. Þessi umsókn er glæpur gegn lýðræði á Íslandi. Krugman; Default Is In Our Stars
 
Tengt efni:
 
 
Nokkrum dögum áður en allt myntbandalag Evrópusambandsins leitaði skjóls hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum: Nota þarf snjóþrúgur þegar gengið er á eggjaskurn myntbandalagsins 
 
Fyrri færsla
 

 


Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst