Glæsilegt afmælismót TBS

Glæsilegt afmælismót TBS Afmælismót TBS var haldið um síðastliðna helgi í íþróttamiðstöðinni á Siglufirði en TBS varð 50 ára þann 5. desember. Um 70

Fréttir

Glæsilegt afmælismót TBS

Frá móti TBS. Ljósmynd GK
Frá móti TBS. Ljósmynd GK

Afmælismót TBS var haldið um síðastliðna helgi í íþróttamiðstöðinni á Siglufirði en TBS varð 50 ára þann 5. desember. Um 70 keppendur voru skráðir á mótið, þar af 58 börn úr Fjallabyggð.

Gaman var að sjá hversu góð þáttaka var á mótinu og alla stuðningsaðilana sem fylgdust með keppninni af mikilli athygli.

María Jóhannsdóttir sem hefur verið í forsvari fyrir TBS til fjölda margra ára á mikið hrós skilið fyrir það starf sem hún heldur út fyrir krakkana okkar. Hún hefur í gegnum tíðina gefið mikið af sér og virðist hafa endalausa elju við að koma krökkunum áfram, þjálfa þau og flakka með þau um landið á hin ýmsu mót.

Hægt er að nálgast úrslit mótsins hér á heimasíðu UÍF 

Frá afmælismóti TBS

Frá amælismóti TBS

Miklu fleiri myndir má sjá hér í myndamöppunni.

Einnig er vert að fylgjast með starfi TBS inn á Fésbókarsíðu þeirra TBS - Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar



Ljósmyndir og texti: Guðný Kristinsdóttir


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst