Gospel og gleði

Gospel og gleði Sunnudaginn 12. apríl voru haldnir gospeltónleikar í Siglufjarðarkirkju að loknu helgarnámskeiði í gospeltónlist. Leiðbeinendur voru þau

Fréttir

Gospel og gleði

Óskar Einarsson
Óskar Einarsson

Sunnudaginn 12. apríl voru haldnir gospeltónleikar í Siglufjarðarkirkju að loknu helgarnámskeiði í gospeltónlist. Leiðbeinendur voru þau Óskar Einarsson, Fanný Tryggvadóttir og Hrönn Svansdóttir.

Við upphaf tónleikanna nefndi Óskar að venjulega væru haldnir svona tónleikar að loknu vetrarstarfi kóra en ekki eftir stutt helgarnámskeið. Óskar veit hvað hann syngur þegar að gospeltónlist kemur, hann hefur verið tónlistarstjóri Fíladelfíu frá árinu 1992, að undanskildum þeim tveimur árum sem hann stundaði tónlistarnám í Bandaríkjunum. 

Eins og Óskar sagði í viðtali við Morgunblaðið "Gospel er gleðigjafi, fyrir mér er hún lífsstíll og sönn lífsfylling".  Gospel tónlist gengur út á það að tala við guð, lofa hann og biðja í gegnum tónlist og ríkti mikil gleði meðal áhorfenda og flytjenda í Siglufjarðarkirkju.



Kórinn í syngjandi sveiflu


Lísa Margrét Gunnarsdóttir syngur af innlifun


Klappað og sungið með


Þorsteinn Bjarnason tók einsöng


Gleðin við völd

Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir 


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst