Hraustir menn stíga á stokk

Hraustir menn stíga á stokk Karlakórinn Hreimur og Ljótu hálfvitarnir í Hofi Ţađ er alls ekki sjálfgefiđ ađ klikkađar hugmyndir virki, svo ţegar ţćr gera

Fréttir

Hraustir menn stíga á stokk

Karlakórinn Hreimur og Ljótu hálfvitarnir í Hofi

Ţađ er alls ekki sjálfgefiđ ađ klikkađar hugmyndir virki, svo ţegar ţćr gera ţađ er um ađ gera ađ endurnýta ţćr.

Ţess vegna ćtla Karlakórinn Hreimur og Ljótu hálfvitarnir ađ endurtaka sína sameiginlegu tónleika – nú í menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardagskvöldiđ 14. nóvember nk. Ţessar rugluđu reytur vöktu mikla hrifningu gesta sem fylltu bćđi Háskólabíó og félagsheimiliđ ađ Ýdölum sl. vor. 

Tónleikarnir verđa međ ţví sniđi ađ Hreimur og Hálfvitar flytja hvorir um sig nokkur lög, en einnig verđur öllu hrćrt saman – Hálfvitarnir setja sín fingraför á nokkrar ţekktar kórperlur og Hreimsmenn hefja upp raust sína í lögum Hálfvitanna, sem voru sérstaklega raddsett fyrir tilefniđ. Hljómsveitin hefur nýlega sent frá sér sína fimmtu plötu, sem ber nafniđ Hrísey, og tóndćmi af henni verđa á efnisskránni. Stjórnandi Hreims er Steinţór Ţráinsson og undirleikari Steinunn Halldórsdóttir

Ţegar ljóst var ađ tónleikarnir í Hofi myndu seljast upp var ákveđiđ ađ endurtaka leikinn strax ađ ţeim loknum, kl. 23 sama kvöld, en ţeir fyrri hefjast kl. 20. Sannarlega hraustir menn hér á ferđ! Enn er hćgt ađ fá miđa á miđnćturtónleikana á mak.is.

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA ODDUR BJARNI ŢORKELSSON, 895 6728 OG GUĐUMUNDUR JÓNSSON, 893 4906.

TÓNDĆMI: https://www.youtube.com/watch?v=BMlDRyr8qgg


Athugasemdir

25.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst