Hreimur og Made in Sveitin

Hreimur og Made in Sveitin Fyrir rétt tæpu ári síðan steig þessi magnaða ballhljómsveit á stokk í Rauðku og hélt þar eftirminnilegt ball á sunnudegi

Fréttir

Hreimur og Made in Sveitin

Fyrir rétt tæpu ári síðan steig þessi magnaða ballhljómsveit á stokk í Rauðku og hélt þar eftirminnilegt ball á sunnudegi verslunamannahelgarinnar. Munu þeir félagar nú stíga aftur á stokk tvö kvöld, laugardag og sunnudag og trilla líðinn sem fyrr. 

Í fyrra mættu þeir tvisvar á Rauðku, um páskana og verslunamannahelgina, og voru þau böll með þeim eftirminnilegri sem haldin hafa verið á Rauðku. Hreimur segir að þeim hlakki mikið til að koma aftur norður og spila, enda var stemmningin þvílík í fyrra. 

Af einhverjum orsökum rataði nafnið Land og Synir inná kynningarefni varðandi Síldarævintýrið og er því vert að leiðrétta þann misskilning segir í tilkyninngu frá Rauðku. Hreimur og Made in  Sveitin munu halda uppi stemmningu hjá okkur bæði kvöldin líkt og í fyrra og verður þeim sem kaupa miða fyrir bæði kvöldin boðinn sérstakur díll. 


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst