Íbúafundur í Ólafsfirði
sksiglo.is | Viðburðir | 16.01.2013 | 17:00 | Gunnar Smári Helgason | Lestrar 43 | Athugasemdir ( )
Íbúafundir vegna vinnu við umferðaröryggisáætlun Fjallabyggðar verða haldnir þriðjudaginn 15. janúar í grunnskólanum við Norðurgötu, Siglufirði kl. 17:00 og miðvikudaginn 16. janúar í grunnskólanum við Tjarnarstíg, Ólafsfirði kl. 17:00.
Farið verður yfir þá vinnu sem hefur átt sér stað og kynntar þær hugmyndir sem liggja fyrir. Sama fundarefni verður á hvorum stað fyrir sig.
Íbúar eru hvattir til þess að mæta þar sem þeim er gefin kostur á að koma sínum skoðunum á framfæri.
Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri tæknideildar.


Athugasemdir