Íbúafundur - Hátíðir í Fjallabyggð 4. febrúar kl. 18:00
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar boðar til íbúafundar fimmtudaginn
4. febrúar kl. 18:00 til að ræða stöðu hátíðarhalda í bæjarfélaginu.
Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði.
Er Síldarævintýrið að líða undir lok? Nær Blúshátíðin fyrri hæðum?
Eru of margar hátíðir í Fjallabyggð? Fyrir hverja eru þessar hátíðir?
Er hægt að sameina eitthvað af þessum hátíðum?
Dagskrá:
- Sjónarhorn framkvæmdaraðila: Anita Elefsen frá Síldarævintýrinu
- Sjónarhorn þjónustuaðila: Kristján Ásgeirsson frá Hótel Brimnesi
- Sjónarhorn bæjarfélagsins: Kristinn J. Reimarsson, deildarstjóri
- Almennar umræður
Fundarstjóri: Kristinn Kristjánsson bæjarfulltrúi.
Allir velkomnir
Sjá nánar á vef Fjallabyggðar hér : http://www.fjallabyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/ibuafundur-hatidir-i-fjallabyggd
Athugasemdir