Jón Steinar Ragnarson opnar ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Jón Steinar Ragnarson opnar ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði Sunnudaginn 17. maí kl. 15.00 opnar Jón Steinar Ragnarson

Fréttir

Jón Steinar Ragnarson opnar ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði

Mynd / Gulli Stebbi
Mynd / Gulli Stebbi

Sunnudaginn 17. maí kl. 15.00 opnar Jón Steinar Ragnarson ljósmyndasýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Jón Steinar er leikmyndahönnuður og ástríðu ljósmyndari, fæddur á Ísafirði 1959 og hefur verið búsettur á Siglufirði síðan 2007. Hann var leikmyndahönnuður á myndunum Nói Albínói, Englar Alheimsins og Ikingut, sem hann akrifaði líka handrit að. Af sjónvarpsefni þar sem hann kemur við sögu má nefna þættina Fóstbræður. Einnig hefur Jón Steinar starfað að uppbyggingu og ímyndarsköpun Rauðku ehf í tengslum við ferðamál fyrir Róbert Guðfinnson. 

Myndirnar sem sýndar verða í Kompunni eru teknar s.l. ár á Siglufiði og nágrenni og leitast við að fanga andrúmsloft og fegurð svæðisins á öllum árstíðum. Líkt og Ásmundur Jónsson gerði forðum með pensil og striga að vopni.

Sýningin stendur til 31. maí og er opin daglega kl. 14.00 - 17.00 þegar skilti er úti.  Annars hafið samband við Aðalheiði í síma 865-5091.

Mynd Jón Steinar

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við starfsemina í Alþýðuhúsinu.


Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst