Magnaðir tónlistamenn á ferð og Siglfirðingur þeirra á meðal

Magnaðir tónlistamenn á ferð og Siglfirðingur þeirra á meðal Hljómsveitin Nykur leggur leið sína á Siglufjörð næstkomandi laugardag en þeirra á meðal er

Fréttir

Magnaðir tónlistamenn á ferð og Siglfirðingur þeirra á meðal

Nykur
Nykur

Hljómsveitin Nykur leggur leið sína á Siglufjörð næstkomandi laugardag en þeirra á meðal er Siglfirðingurinn Jón Svanur Sveinsson sem spilar á bassa. Hljómsveitin hefur nú gefið út sína aðra plötu, Nykur II en fyrri platan hlaut mikið lof enda kraftmikið og skemmtilegt rokk þar á ferð. 

 

Nykur er rokksveit, mönnuð reynsluboltum úr bransanum. Hljómsveitin spilar kraftmikið sígilt rokk, frumsamin lög með grimmum gítarriffum, ofin saman við ágengar laglínur sem innihalda bitastæða texta á okkar ylhýra. 

Nykur varð til sumarið 2013 og gaf fljótt út sýna fyrstu plötu það ár, samnefnda sveitinni. Frumraunin fékk prýðis viðtökur og var líka gerður góður rómur af tónleikum hennar í kjölfarið. Nykur er í þessum skrifuðum orðum að ljúka gerð annarrar plötu sinnar, sem er búin að vera í vinnslu síðustu misseri. Gripurinn er væntanlegur í mars og kitlar bandið í fingurnar að fara að spila aftur á tónleikum um land allt. 

Hljómsveitina skipa; Davíð Þór Hlinason (Dos Pilas) söngur og gítar, Guðmundur Jónsson (Sálin hans Jóns míns) gítar og bakraddir, Kristján B. Heiðarsson (Dark Harvest) trommur og bakraddir og Jón Svanur Sveinsson (Númer Núll) á bassa og bakraddir.

Forsalan hófs á Sigló Hótel miðvikudaginn 30.mars, miðaverð 2.000kr.


Athugasemdir

18.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst