Makríll 2013 og tækjakaup

Makríll 2013 og tækjakaup Vonandi verður fljótlega gefinn út kvóti í makríl fyrir árið 2013 af Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra. Þá er ekki

Fréttir

Makríll 2013 og tækjakaup

Finnbogi Vikar
Finnbogi Vikar

Vonandi verður fljótlega gefinn út kvóti í makríl fyrir árið 2013 af Steingrími J. Sigfússyni
atvinnuvegaráðherra. Þá er ekki úr vegi að minna á að það er almennur vilji til þess að jafnræði
verði gætt við úthlutun veiðiheimilda, ekki fáir útvaldir fái ríkulegan arð af þessari syndandi auðlind í
lögsögu Íslands.

Fé frá uppboði makríl aflaheimilda til tækjakaupa

Þess vegna vil ég beina því til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnar VG og
Samfylkingarinnar að gæta jafnræðis við úthlutun veiðiheimilda í makríl og slá tvær flugur í einu
höggi. Það má afla peninga til tækjakaupa fyrir Landspítalann og heilbrigðisstofnanir um land allt,
sem ríkið hefur ekki lokað vegna fjárskorts, með því að bjóða upp aflaheimildir í makríl á almennum
og opnum uppboðsmarkaði fyrir útgerðaraðila, fiskvinnslur og almenning og skilyrða tekjur
uppboðsins fyrir veiðiheimildir í makríl 2013 til tækjakaupa á Landspítalanum og heilbrigðisstofnanir
um land allt. Þannig mætti fá hugsanlega milljaraða til tækjakaupa og jafnræðis gætt við úthlutun
veiðiheimilda í makríl 2013.

Aflinn seldur á fiskmarkaði – rétt markaðsverð fyrir sjómenn

Skylda ætti síðan að selja allan aflan á opnum innlendum fiskmarkaði þar allir hagsmunaaðilar í
vinnslu og sölu makríls gætu boðið í aflann, hvort sem er ferskan eða frosinn, unninn eða óunnin við
löndun. Það er til að tryggja gegnsæi í sölu aflans og sjómönnum markaðsverð og réttmætan aflahlut
í samræmi við raunverulegt aflaverðmæti skip og báta er stunda makrílveiðar.

7 milljarðarðar ef færeyska leiðin yrði innleidd

Verðmætin út úr þessari fjáröflunarleið fyrir Landspítalann eru gríðarlega mikil. Færeyingar buðu t.d.
upp hluta af makrílkvóta sínum hjá Fiskmarkaði Færeyja og með heimild í færeyskjum lögum „nr.
74 frá 6.juni 2011 um serstakar treytir fyri makrelfiskiskapi í 2011“. Færeysk stjórnvöld fengu um 1
milljarð íslenskra króna fyrir 20 þúsund tonn af markíl. Ef íslensk stjórnvöld myndu bjóða íslenska
makrílkvótann myndi það þýða miðað við forsendur úr færeyska uppboðinu rúmlega 7 milljarðar
króna fyrir 142 þúsund tonna makrílkvóta íslendinga

5 milljarða gjöf til útgerðarmanna í uppsjávarveiði makríls

Samanlagt almennt og sérstakt veiðigjaldið af makríl mun aðeins skila tæpum 2 milljörðum
króna án tillits til lækkunarheimilda samkvæmt lögum um veiðigjöld. Þarna munar meira en 5
milljörðum króna sem er verið að gefa útgerðarfyrirtækinum miðað við uppboðin hjá frændum
okkar færeyingum.Það er óskiljanlegt að íslenskt stjórnvöld og ríkisstjórn Samfylkingar og VG hafi
ekki farið sömu leið og færeyskt stjórnvöld. Nýtum makrílinn til að bæta tækjakost Landspítalans og
heilbrigðisstofnanna um land allt með því að halda uppboð á íslenska makrílkvótanum árið 2013.

Þessu er hér með beint til Steingríms J. Sigfússonar atvinnuvegaráðherra og ríkisstjórnarflokkanna,
VG og Samfylkingarinnar.

Virðingarfyllst

Finnbogi Vikar, viðskiptalögfræðingur


Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst