Reitir verđa haldnir 2.-14. júlí 2014

Reitir verđa haldnir 2.-14. júlí 2014 Reitir verđa haldnir 2.-14. júlí 2014 og viljum viđ bjóđa Siglfirđingum tćkifćri til ađ taka ţátt í uppbyggingu

Fréttir

Reitir verđa haldnir 2.-14. júlí 2014

Innsent efni.
 
Reitir verða haldnir 2.-14. júlí 2014 og viljum við bjóða Siglfirðingum tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu verkefnisins. Nú leitum við til bæjarfélagsins í fjáröflunarskyni og viljum biðja þig að íhuga að vera vinur Reita.

Ef þú styrkir okkur um 2.500 kr.- ferðu á lista yfir vini Reita á heimasíðu verkefnisins og hefur auðveldað okkur að byggja upp traustan grunn fyrir áframhaldandi starf næstu ár.

Alþýðuhúsið hýsir verkefnið sem er stjórnað af Arnari Ómarssyni og Ara Marteinssyni. Verkefnið er ekki framkvæmt í hagnaðarskyni og öll vinnan sjálfboðavinna. Meðal fyrri styrktaraðila er Menningarráð Eyþings, Evrópa Unga Fólksins, Fiskbúð Siglufjarðar, Aðalbakaríið, Siglufjarðar Apótek, Rauði krossinn, Siglunes Guesthouse, Fjallabyggð, Rauðka, Billinn, Ferðafélag Siglufjarðar og Síldarminjasafnið. Nýir styrktaraðilar eru Raffó, Sigló sport og Allinn. Við þökkum þessum aðilum fyrir að hafa gert okkur kleift að gera Reiti að veruleika og taka þannig virkan þátt í menningaruppbyggingu á Siglufirði.

Verkefnið var tilnefnt til Eyrarósarinnar 2014, sem er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Fyrir frekari upplýsingar um verkefnið skoðið www.reitir.com.

 

Styrkur greiðist inná eftirfarandi reikning í Sparisjóðnum:

kt. 2408863919

reikn. 1102-26-000886


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst