Saga fotografica

Saga fotografica Svissneskur ljósmyndari, Walter Huber, sýnir í Saga Fotografica á Siglufirði á laugardag og sunnudag. Huber vann fyrstu verðlaun í

Fréttir

Saga fotografica

Svissneskur ljósmyndari, Walter Huber, sýnir í Saga Fotografica á Siglufirði á laugardag og sunnudag. 

 

Huber vann fyrstu verðlaun í samkeppni svissneskra náttúruljósmyndara á þessu ári og var jafnframt valinn ljósmyndari ársins þar á bæ. Verðlaunamyndina, sem sjá má hér að ofan, tók hann úr þyrlu austan við Mýrdalsjökul. 

Walter og Ruth eiginkona hans, sem eru tæplega sjötug, eru sannkallaðir Íslandsvinir; hafa sótt landið heim ellefu sinnum frá aldamótum, dvalið hér samtals í 19 mánuði á þeim tíma og Walter verið iðinn með ljósmyndavélina. Myndirnar sem Huber sýnir á Siglufirði eru allar teknar á Íslandi.

 

Saga Fotografica er á Vetrarbraut 17 og þar verður opið frá kl. 13 til 16 um verslunarmannahelgina. 

 

Myndir Hubers verða sýndar á skjá og eru tvær sýningar hvorn dag; fyrst klukkan 13-14 og aftur 15-16.


Athugasemdir

20.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst