Stórlax á Handverkshátíđinni um ađra helgi

Stórlax á Handverkshátíđinni um ađra helgi Undirbúningur 22. Handverkshátíđar stendur sem hćst enda ađeins vika í hátíđina. Sýningin verđur sett

Fréttir

Stórlax á Handverkshátíđinni um ađra helgi


Undirbúningur 22. Handverkshátíðar stendur sem hæst enda aðeins vika í hátíðina.

 

Sýningin verður sett fimmtudaginn 7. ágúst og lýkur sunnudaginn 10. ágúst. Sýningin hefur fengið að gjöf 1,5 m háa gestabók klædda laxaroði og verður hún staðsett í hjarta sýningarinnar og hvetjum við gesti til að kvitta fyrir heimsókn sína í hana.

 

Sýningin verður fjölbreytt líkt og undanfarin ár. 91 sýnandi af öllu landinu selja skart, fatnað, fylgihluti, textíl, keramik og gler og á útisvæðinu er stórt tjald og skálar með ýmiskonar íslenskum matvælum.

 

Félag ungra bænda á Norðurlandi býður upp á húsdýrasýningu auk skemmtilegra viðburða, Búsaga sýnir gamlar vélar og þjóðháttafélagið Handraðinn setur upp miðaldabúðir.

 

Veitingasala, handverksmarkaður og lifandi tónlist alla dagana. Uppskeruhátíðin fer fram á laugardagskvödinu. Matreiðslumenn Greifans sjá um glæsilega grillveislu og meðal þeirra sem fram koma eru Pálmi Gunnarsson ásamt hljómsveit, Álftagerðisbræður og prestatríó skipað séra Hildi Eir, séra Oddi Bjarna og séra Hannesi Blandon kemur sérstaklega saman fyrir þetta kvöld og slær á létta strengi.

 

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og búa aðstandendur hátíðarinnar sig undir að taka á móti 15-20.000 gestum. 


Allar nánari upplýsingar er að finna á www.handverkshatid.is.


Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst