Svarthvítir karakterar Jóu Halladóttur

Svarthvítir karakterar Jóu Halladóttur Um páskahelgina var Jóhanna Unnur Haraldsdóttir, eđa Jóa Halladóttir eins og hún kallar sig, međ sýningu á verkum

Fréttir

Svarthvítir karakterar Jóu Halladóttur

Um páskahelgina var Jóhanna Unnur Haraldsdóttir, eða Jóa Halladóttir eins og hún kallar sig, með sýningu á verkum sínum í Allanum á Siglufirði.
 
Fjölmargir lögðu leið sína í Allann til að skoða verkin og ég er bara alls ekki frá því að ég hafi þar augum litið eitt fegursta listaverk sem ég hef séð. Jú það var nefnilega kallinn sjálfur inn á milli alls konar annarra misvitra og alvitra sérvitringa sem hafa litað mannlífið á Íslandi og í útlöndunum bæði í leiklist, sönglist og ýmsu öðru. 
 
Það er óneitanlega svolítið sérstakt að sjá mynd af sér hangandi upp á flottri listaverkasýningu. Frekar átti ég von á því að gerður væri af mér abstrakt skúlptúr í mýflugumynd sem væri svo hent að sýningu lokinni en Jóa tók þá ákvörðun að mála karlinn sem var alveg hreint ótrúlegur heiður fyrir mig og verkið alveg þrælflott. Þarna sá ég svart á hvítu að "listaverka photoshop" svínvirkar alveg hreint ef réttir listamenn nota "málara-photoshoppið" og það virkar ekki bara til að fegra konur. Kallinn var bara næstum því fallegur á striganum.
 
Sýningin hjá Jóu hét "Svarthvítir karakterar" og án alls gríns og grobbs þá voru verkin hvert öðru glæsilegra og var sýningin mjög vel sótt. 
 
Siglfirðingar eru búnir að eignast enn einn listamanninn sem á vafalaust eftir að gera það mjög gott í list sinni og ég hvet ykkur til að missa ekki af næstu sýningu hjá Jóu.
 
Jóa HallaBjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Haraldur Björnsson
 
Jóa HallaKristín Sigurjónsdóttir að virða fyrir sér listaverkin.
 
Jóa Halla2 listakonur. Jóa Halladóttir með pensilinn og Kristín Sigurjónsdóttir með myndavélina.
 
Jóa HallaÓlafía Anna eða Lóa eins og hún er nú oftast kölluð á Sigló kom til að virða listaverkin fyrir sér.
 
Jóa HallaHún hefur hæfileika eins og sést á þessari mynd.
 
Jóa HallaSvo verð ég nú bara að setja þessa mynd inn, ég er bara svo sjálfhverfur. Hér er mynd af mér við mynd af mér. Sem er alveg stórskemmtilegt. 
 
Jóa HallaJóa Halladóttir.
 
 
 
 
 

Athugasemdir

29.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst