Sýning í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði 1. maí

Sýning í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði 1. maí Sunnudaginn 1. maí kl. 15.00 opnar Lefteris Yakoumakis. Yfirskrift sýningarinnar er " Það er enginn

Fréttir

Sýning í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði 1. maí

 

Sunnudaginn 1. maí kl. 15.00 opnar Lefteris Yakoumakis sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Yfirskrift sýningarinnar er " Það er enginn Guð vestur af Salina ", og fjallar um ferð listamannsins frá Kansas til Kóloradó í Bandaríkjunum.
Lefteris er fæddur í Aþenu árið 1984. Hann nam málun í myndlistadeild Aristotle University í Þessalóniku árin 2003-2008. Hann hefur sýnt verk sín víða, stundað kennslu og ferðast.
Lefteris hefur dvalið hluta úr ári á Siglufirði undanfarin 3 ár og hefur bæjarfélagið og kynni af fólki verið honum innblástur .


Þar sem 1. maí er fyrsti sunnudagur í maímánuði mun Lefteris einnig sjá um " Sunnudagskaffi með skapandi fólki " sem hefst kl. 15.30 . Þar mun hann fjalla um verk sín allmennt og teiknimyndabók ( graphic novel ) sem hann er að vinna í samstarfi við Bandaríska rithöfundinn T.Carl Hardy. Bókin er innblásin af Egils sögu.



Allir velkomnir, kaffiveitingar.


Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings, Fiskbúð Siglufjarðar og Egilssíld styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.


Athugasemdir

18.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst