Vampýrur: kjaftur og klær

Vampýrur: kjaftur og klær Í næstum því tvær aldir hefur vampýran notið ódauðlegra vinsælda í skáldskap og kvikmyndum. Ímynd hennar hefur þó tekið miklum

Fréttir

Vampýrur: kjaftur og klær

Laugardaginn 21. feb. kl. 20.00 verður Úlfhildur Dagsdóttir með fyrirlestur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði undir yfirskriftinni

Vampýrur: kjaftur og klær

 
Í næstum því tvær aldir hefur vampýran notið ódauðlegra vinsælda í skáldskap og kvikmyndum. Ímynd hennar hefur þó tekið miklum breytingum, svo og hugmyndir okkar um vampýrur. Lengi vel var greifinn Drakúla þekktasta vampýran, en skáldsagan um hann kom fyrst út árið 1897. Ég ætla að leggja áherslu á Drakúla og fjalla sérstaklega um hvernig hann hefur birst í kvikmyndum. Sýnd verða brot úr nokkrum þekktum Drakúla-myndum, með áherslu á Nosferatu (1922), Dracula (1931) og Bram Stoker’s Dracula (1992).

mailto:varulfur@centrum.is
garmur.is/varulfur

Fólk er hvatt til að draga fram Vampýruna í sér og mæta í búningi.

Enginn aðgangseyrir, en tekið á móti frjálsum framlögum.  Allir velkomnir.

Fjallabyggð, Menningarráð Eyþings og Fiskbúð Siglufjarðar eru stuðningsaðiar Alþýðuhússins.

Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091


Athugasemdir

19.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst