Vind-mynd-band 14. mars

Vind-mynd-band 14. mars Hér er enn eitt vind-myndbandið. Ég hef reyndar ekki séð neitt vind-myndband frá Sigló enn sem komið er en þó gætu hæglega verið

Fréttir

Vind-mynd-band 14. mars

Hér er enn eitt vind-myndbandið.
 
Ég hef reyndar ekki séð neitt vind-myndband frá Sigló enn sem komið er en þó gætu hæglega verið einhver svoleiðis myndbönd á samfélagsmiðlunum og jafnvel á norðlægum miðlum.
 
En hér er allavega eitt örstutt myndband sem sýnir að einhverju leyti þennan "lauflétta andvara" sem kom við á Sigló 14. mars.
 
Hér má sjá björgunasveitarmenn úr Björgunarsveitinni Strákum á Siglufirði huga að Steina Vigg og fleiri bátum. Gám sem fauk í sjóinn og Halldór Hafsteinsson þar sem hann gengur á móti vindinum hjá Thora horninu. En þess má geta að það þarf að vera töluverð gola til þess að feykja honum Halldóri vini mínum til. Hann minnti mig óneitanlega á indjána á gresjum Ameríku þar sem hann kemur gangandi með hárið flaksandi fyrir hornið. Kúrekarnir hefðu bara ekki haft roð í svona testósterone-naut sem maðurinn er.
 
Og ég mæli með því að þið hækkið í græjunum þegar þið horfið á myndbandið því Karlakór Siglufjarðar syngur alveg listavel undir. Ég tek það fram að ég var ekki í kórnum þegar þetta var tekið upp og þar af leiðandi hljómar þetta örugglega svona vel. 
 

 
 
 
Hér eru svo nokkrar myndir sem Guðmundur Gauti hjá skoger.123.is tók í gær og svo auðvitað hjá Steingrími Kristins
 
 
 
Hér er svo bein slóð á myndbandið á youtube.

Athugasemdir

28.mars 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst