Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.
Flýtilyklar
Suðurgata 46
- Svefnherbergi
- 3
- Stærð
- 120 m²
- Gistrými
- 8
Tímabil | Helgi | Virk. dag | Vika |
---|---|---|---|
Sumarverð/hátíðarverð | 60.000 kr. | 14.000 kr. | 80.000 kr. |
Vetrarverð | 45.000 kr. | 12.000 kr. | 60.000 kr. |
Sumarverð/Hátíðaverð jól/páskar 1.maí-1.okt
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
- Lýsing
Suðdurgata 46 (Hús Síldarútvegsnefndar), stendur hátt uppi á hól á svokallaðri Hafnarhæð og verður útsýnið yfir bæinn, höfnina, innfjörðinn og fjallahringinn vart mikið betra en þaðan. Fáeinum tugum metra fyrir ofan húsið eru snjóflóðavarnargarðarnir eða Ríplarnir, vinsælustu göngu og útivistarsvæði bæjarins. Fyrir miðja síðustu öld var rekið þvottahús á neðri hæðinni og þangað komu þá sjóarar með plögg sín ef þeir vildu hafa sig til fyrir söltunarstúlkurnar á næsta landleguballi, en fáeinum árum síðar varð húsið bústaður Jóns Stefánssonar framkvæmdastjóra Síldarútvegsnefndar. Þarna hóf Síldarminjasafnið starfsemi sína og opnaði sína fyrstu sýningu á afmælisdegi Siglufjarðar þ. 20. maí 1991, en um sumarið sama ár var fyrsta Síldarævintýrið haldið um verslunarmannahelgina. Óhætt er því að segja að húsið tengist sögu síldarbæjarins Siglufjarðar talsvert.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni á efri hæðinni sem er afar rúmgóð. Eitt er með þremur rúmum, annað með tveimur og það þriðja með hjónarúmi og barnarúmi. Tveir fataskápar eru í íbúðinni, góð aukadýna, svo og sængur og koddar fyrir átta manns.
Eldhúsið er mjög vel búið öllum hugsanlegum tækjum, tólum og búnaði til eldamennsku.
Í stofu er sjónvarp (grunnpakki frá siminn.is), heimabíó, nettengd tölva, svolítið DVD safn svo og bókasafn upp á nokkra tugi bóka og kilja.
Aðeins örfáar mínútur tekur að ganga niður í miðbæ.
Ef óskað er eftir þrifum er verð fyrir það kr 20.000.-
- Aðbúnaður
-
Borðbúnaður Já DVD spilari Já Frystir Já Garðhúsgögn Nei Gott aðgengi fyrir hjólastóla Nei Gæludýr leyfileg Nei Heitur pottur Nei Hljómflutningstæki (CD) Já Internettengi (þráðlaust) Já Ísskápur Já Kaffivél Já matarstóll fyrir börn Já Reykingar leyfilegar Nei Sjónvarp Já Sólpallur Nei Sturta/baðkar Já Ungbarnarúm Já Uppþvottavél Já Útigrill Nei Örbylgjuofn Já Þurrkari Já Þvottasnúrur Já Þvottavél Já
-
Valló ehf.
Sími: 893-5059
Tölvupóstur: egillrogg@simnet.is