föstudagur 30. júlí 2010 04:13

SKSiglo.is

Aukum við kvótann strax. Það veður fiskur um allan sjó. Látum ekki einhverja reglustikukalla á Hafró ákveða það að skipta meiri skorti meðal þjóðarinnar. Hann er þegar nógur. Af  hverju veiðum við ekki meira núna í ár og næsta ár og reynum svo að hugsa málið aftur eftir þann tíma ef vera kynni a kreppunni hefði linað eitthvað.

Fréttir

Aukum kvótann strax!

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson
Aukum við kvótann strax. Það veður fiskur um allan sjó. Látum ekki einhverja reglustikukalla á Hafró ákveða það að skipta meiri skorti meðal þjóðarinnar. Hann er þegar nógur. Af  hverju veiðum við ekki meira núna í ár og næsta ár og reynum svo að hugsa málið aftur eftir þann tíma ef vera kynni a kreppunni hefði linað eitthvað.Bjarni Benediktsson(eldri) sagði að heldur skyldum við drepa fiskinn en fólkið. Nú er neyð í landinu. .Nú þurfum við á að halda öllu sem við getum. Auka við framleiðslu í sjávarútvegi og landbúnaði. Setja á sem allra mest, rækta,heyja, veiða og vinna.  

Er enginn þingmaður með snefil af skilningi á því á hverju þessi þjóð lifir ? Vantar okkur ekki nýtt þing í hvelli ? Þetta núverandi dugar greinilega ekki.

 

New Deal sagði Roosewelt ! Gefum uppá nýtt.Komum okkur upp úr hjólfari kyrrstöðunnar.Burt með þetta ónýta þing og þessa handónýtu ríkisstjórn sem getur ekki hugsað nema í nýjum lánum og skiptingu skortsins.

 

Aukum kvótann strax!



Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn