esv.blog.is/blog/esv/#entry-982879 | Blogg | 06.06.10 | 17:27 | Robert | Athugasemdir (0)
Merkilega hár hiti á hálendinu
Tók eftir því í morgun að á korti Veðurstofunnar kl.09 var hæstur hitinn
á Sandbúðum á Sprengisandi í 820 metra hæð. Hitinn
þar var þá 14°C og hækkandi í sterku sólskininu. Í gær fór hitinn þarna
í tæpar 19 gráður og eins var vel hlýtt í fyrradag. Mér þykir nokkuð merkilegt að sjá hversu hlýtt er í sólskininu á
hálendinu þetta snemma sumars. Við skulum athuga að það er ekki nema 6.
júní. Vanalega er snjó enn að leysa í þessari hæð, klaki í
jörðu er fram á sumarið og geislar sólar fer þá í leysinguna en
ekki upphitun sandanna og þar með loftsins. Sumarhlýinda er þannig
ekki að vænta á hálendinu í venjulegu árferði fyrr en í fyrsta lagi í
lok júní og oftast ekki fyrr en komið er fram í júlí.

Sjá á tunglmynd (MODIS) frá því í gær, 5. júní kl. 14 að snjó hefur að mestu tekið upp á hálendinu. Það er helst að sjá fyrningar svona úr lofti á Nýjabæarafrétt við Eyjafjarðarbotn og eins í Bleiksmýrarárdrögum þar austur af. Þarna er háslétta í um 800-1000 metra hæð. Myndin tekur líka af allan vafa. Bullandi bólstramyndun á Sprengisandi og Hofsafrétti norðan Hofsjökuls. Bólstrarnir eru órækur vitnisburður um það að jörðin hlýnar og varmi streymir upp í stað þess að bræða ís og snjó.

Á Hveravöllum var einnig sérlega hlýtt í gær eða tæplega 16°C. Ekki veit ég hvað það er í sögulegu samhengi, en hitinn hefur vissulega farið yfir 20 stigin í júní þar, en vissulega alveg í lok mánaðarins. Hins vegar er maímetið 15,7°C á Hveravöllum frá 27.maí 1977. Það ártal vekur upp ákveðin hugrenningatengl því afar snjólétt þótti á hálendinu veturinn 1976-1977 líkt og nýliðinn vetur.
Myndin af skálanum í Sandbúðum
er fengin af síðu Jóns Skjaldar Karlssonar
mótorhjólagarps og tekin á miðju sumri fyrir nokkrum árum.
Heimildir