Opna Íslandsmót Garpa Í sundi
sksiglo.is | Viðburðir | 01.05.2010 | 18:00 | | Lestrar 277 | Athugasemdir ( )
Opna Íslandsmót Garpa í sundi ( IMOC ) verður haldið í sundhöll Siglufjarðar dagana 30. apríl og 1. maí. Þess má geta að þetta er í þriðja sinn sem mótið fer fram á Siglufirði, áður árin 2003 og 2005. Sundhöll Siglufjarðar er eina sundlaugin utan höfuðborgarsvæðis sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru, t.d. 25 m innilaug . Til fróðleiks má geta þess að þetta mót er sett inn á heimasíður alþjóðasamtaka (FINA) einnig Evrópusamtaka (LEN) og að sjálfsögðu sérstök kynning á heimasíður sundsambanda norðurlandana. ,,,,kv. Ólafur Baldursson



Athugasemdir