22-23.000 störf hafi tapast frá hausti 2008

22-23.000 störf hafi tapast frá hausti 2008  Um 13.000 einstaklingar eru án atvinnu á Íslandi í dag. Þúsundir hafa flutt úr landi og þannig má færa rök

Fréttir

22-23.000 störf hafi tapast frá hausti 2008

Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson
 Um 13.000 einstaklingar eru án atvinnu á Íslandi í dag. Þúsundir hafa flutt úr landi og þannig má færa rök fyrir því að 22-23.000 störf hafi tapast frá hausti 2008. Afleiðingarnar eru þær að frá þeim tíma hafa yfir 60 milljarðar farið í greiðslur atvinnuleysisbóta. Hér er um mikið samfélagsmein að ræða og því forgangsmál að stjórnvöld snúi þessari þróun við. En er eitthvað sem bendir til þess að forgangur ríkisstjórnarinnar sé sá að fjölga störfum í landinu? Ef horft er yfir sviðið þá blasir við aðgerðarleysi, eyðilegging skattkerfisins og brot á stöðugleikasáttmálanum við aðila vinnumarkaðarins.  Þetta er meðal þess sem núverandi ríkisstjórn hefur „afrekað“ í atvinnumálum á sl. 2 árum.
5000 einstaklingar án atvinnu í meira en eitt ár

Langtímaatvinnuleysi er nýtt samfélagslegt vandamál sem blasir við okkur. Af 13.000 sem ekki hafa atvinnu í dag hafa um 5.000 einstaklingar ekki haft atvinnu í meira en eitt ár. Kannanir frá öðrum löndum sýna að hætt er við að þessi þjóðfélagshópur muni að litlu leyti snúa aftur inn á vinnumarkaðinn. Sú einangrun sem atvinnuleysi um langa hríð fylgir hefur því gríðarlega neikvæð áhrif á viðkomandi einstaklinga. Nauðsynlegt er að hugsa vinnumarkaðsúrræðin upp á nýtt í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og þeirra sem reynsluna hafa að hafa ekki atvinnu. Hér duga engin vettlingatök.
 
Atvinnumál eru í forgangi hjá Framsókn

Stjórnvöld þurfa jafnframt að girða sig í brók og hefja sókn í atvinnumálum. Það er fullreynt að þessi ríkisstjórn muni nokkurn tímann standa fyrir slíku átaki. Á komandi flokksþingi Framsóknarflokksins verða atvinnumálin í brennidepli. Innan flokksins fer nú fram vinna þar sem sóknarfæri íslensk atvinnulífs eru skilgreind. Þannig mun Framsóknarflokkurinn koma enn á ný fram með tillögur í efnahags- og atvinnumálum. Framsóknarflokkurinn er því reiðubúin að taka við keflinu þegar ríkisstjórnin hefur formlega lýst yfir uppgjöf gagnvart því verkefni sem er að koma Íslandi sem fyrst út úr þessari efnahagslægð. Vonandi mun það gerast fyrr en síðar.

Athugasemdir

30.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst