Fjallatengd ferđaţjónusta

Fjallatengd ferđaţjónusta Tröllaskagi er ţekktur á heimsvísu í hópi fólks sem rennir sér á skíđum utan brauta í bröttum fjöllum. Margar erlendar

Fréttir

Fjallatengd ferđaţjónusta

Tröllaskagi er þekktur á heimsvísu í hópi fólks sem rennir sér á skíðum utan brauta í bröttum fjöllum. Margar erlendar ferðaskrifstofur selja fjallaskíðaferðir á skagann og á háannatímanum, í apíl og maí, fylla þessir gestir nær allt gistirými í Svarfaðardal, Skíðadal, á Dalvík og í Ólafsfirði. Þetta kom fram hjá Jökli Bergmann þegar hann heimsótti nemendur í Tröllaskagaáfanga.

Jökull telur mikla framtíð í fjallatengdri ferðaþjónustu á skaganum. Fyrirtæki hans hefur boðið fjallaskíðaferðir hér í fimmtán ár en þyrluskíðaferðir í sjö ár. Hann segir að í heild stundi aðeins um tuttugu þúsund manns þyrluskíði en þetta séu mjög verðmætir gestir. Fjögurra til sex daga ferðir kosti á bilinu 800-1700 þúsund krónur. Þessir gestir skilji eftir fimmtán til tuttugu sinnum meira en meðalferðamaðurinn sem heimsækir landið. Hann segir að um 65% sinna gesta komi aftur. En varan er afar áhættusöm og mikilvægt að starfsemin sé stunduð í samræmi við stranga staðla. Kanadamenn séu brautryðjendur í þyrluskíðaferðum.

Hann hafi byggt sitt fyrirtæki upp að kanadískri fyrirmynd, en þar hafi hann búið, starfað og numið í mörg ár. Í vetur hafa þrjú fyrirtæki boðað að þau ætli að selja þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga í samkeppni við fyrirtæki Jökuls. Hann telur að landrými á skaganum auk fjallanna handan Eyjafjarðar í Grýtubakkahreppi dugi aðeins fyrir eitt þyrluskíðafyrirtæki.

 

Mynd og texti www.mtr.is


Athugasemdir

30.apríl 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst