Frostrósir á glugga

Frostrósir á glugga Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður ég vel að kúra um stund og staðnæmast við

Fréttir

Frostrósir á glugga

Marta B Helgadóttir
Marta B Helgadóttir
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður 
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður 
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það 
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.  

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá 
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá 
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti 
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur 
faðma þennan morgun og allar hans rætur 
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt 
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest 
þetta er góður dagur, hafðu það sem best 
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni 
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

Ljóðið heitir Valið, úr bókinni Kærleikskitl  óbærileg lífshamingja, eftir Unni Sólrúnu Bragadóttur



Athugasemdir

01.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst