Nýjar hugmyndir vinstri manna um sjávarútvegsmál

Nýjar hugmyndir vinstri manna um sjávarútvegsmál Bloggari hefur dvaldist í Asíu og Afríku á undanförnum árum.  Eitt af því sem menn óttast þar er

Fréttir

Nýjar hugmyndir vinstri manna um sjávarútvegsmál

Gunnar Þórðarson
Gunnar Þórðarson
Bloggari hefur dvaldist í Asíu og Afríku á undanförnum árum.  Eitt af því sem menn óttast þar er hættulegt smit sem moskító flugan ber með sér.  Á Sri Lanka kallast sjúkdómurinn Deng en í Afríku Malaría.  Moskítóflugan lifir reyndar ekki nema í um tvo sólarhringa og þarf að fyrst að stinga sýktan einstakling áður en hún getur borið smitið í næsta mann.  Miðað við að hún ferðast venjulega ekki út fyrir 200 metra ratíus er auðséð að hættan er þar sem sýktir einstaklingar eru fyrir.

Til að lækna malaríu var og er notað kínin sem er eitur.  Það drepur ekki bara sýkinguna heldur hálfdrepur einstaklingin sem á að lækna.  Þetta er því svona örþrifaráð þar sem malaría dregur oftar en ekki einstaklingin til dauða.

Þetta rifjast upp þegar hugsað er til fundar vinstrimanna í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sem haldin var s.l. miðvikudagskvöld um sjávarútvegsmál.  Þar voru frummælendur mikill hagfræðingur og reynd fiskvinnslukona sem fer fyrir Fiskvinnslu án útgerðar.  Þar kynntu þau þær hugmyndir að rétt væri að láta sjávarútveginn hrynja til grunna og byggja síðan nýjan á rústunum.  Það á sem sagt að gefa útgerðinni eitur, sem ólíkt kínin, á að örugglega að drepa greinina.  Allt er þetta gert í þágu ,,réttlætis" og til að losna við þá sem nú stunda útgerð og koma öðrum inn í staðinn.Það versta við þessa hugmyndafræði er að ólíkt moskítóflugunni nær hún meiri útbreiðslu og hefur lengri líftíma.  Gagnsemin er hinsvegar af svipuðum toga og ekkert gott sem af henni leiðir.  Hugmyndirnar eru reyndar svo geggjaðar að það gæti verið móðgun við moskító að líkja þessu saman.

Nú þegar sýnt er að fyrningin aflaheimilda er ófær og það sem sagt hefur verið gegn henni verið staðfest af Háskólamönnum á Akureyri og Reykjavík, að þá er gripið til nýrra hugmynda.  Nú skal stefnt að því að rústa sjávarútvegnum.  Grímulaust.


Athugasemdir

02.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst