Af sem áður var

Af sem áður var Myndin sem fylgir þessari frétt var tekin á háannatíma við Ráðhústorgið, eða um 16:30 í gær.Það má merkja töluverða breytingu á

Fréttir

Af sem áður var

Eitthvað vantar ?
Eitthvað vantar ?
Myndin sem fylgir þessari frétt var tekin á háannatíma við Ráðhústorgið, eða um 16:30 í gær.

Það má merkja töluverða breytingu á bæjarlandslaginu af þessari mynd að dæma.


Þökk sé markvissu og áhrifaríku átaki lögreglunnar í umferðarmálum eru Siglfirðingar nú hættir að leggja ólöglega á einni helstu umferðaræð bæjarins.

Þar sem áður var ekki þverfótað fyrir bílum nýtur torgið sín nú til fullnustu og nægt pláss fyrir umferð og gangandi vegfarendur.

Siglfirðingar í verslunarhugleiðingum þurfa nú að finna sér önnur úrræði til þess að leggja bílum sínum.

Það er þó spurning hvort bæjaryfirvöld megi ekki gera skurk í því að afmarka bílastæði í miðbænum- Í tilefni þess að átak í umferðarmálum er í gangi.







Athugasemdir

17.maí 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst