Er lengra frá Reykjavík til Siglufjarðar heldur en frá Siglufirði til Reykjavíkur ?
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 03.09.2010 | 07:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 518 | Athugasemdir ( )
Róbert Haraldsson, formaður og þjálfari hjá Knattspyrnufélagi Siglufjarðar sendi frá sér athyglisverðan pistil um stöðu landsbyggðarliða gagnvart liðum frá höfuðborgarsvæðinu.
Pistillinn hefur vakið mikla athygli og dreifist nú sem eldur í sinu í netheimum.
Pistillinn snýst um vinnubrögð KSÍ og þann mismun sem gerður er á milli aðildafélaga. Liðunum utan af landi er gert að ferðast til Reykjavíkur til þess að taka þátt í úrslitum Íslandsmótsins og gremst mönnum þetta.
Ferðakostnaður liða frá landsbyggðinni er margfaldur á við kostnað liðanna á höfuðborgarsvæðinu en ekkert tillit virðist vera tekið til þess.
Knattspurnufélag Siglufjarðar óskaði sérstaklega eftir því við KSÍ, í bréfi fyrr í sumar að fá að halda úrslitakeppni á Siglufirði eða Ólafsfirði, þegar það var nokkuð ljóst að yngri flokkar liðsins væru á leið í úrslit, lítil viðbrögð urðu við þessari beiðni og henni hafnað án frekari skýringa.
KS er með þrjá flokka í úrslitum þetta árið (3.kvk-3.kk-4.kvk). Ferðakostnaðurinn hefur verið mikill í sumar og svo bætast við ferðir til Reykjavíkur.
Það virðist vera skoðun forráðamanna KSÍ og liða á höfuðborgarsvæðinu að það sé mun lengra frá Reykjavík til Siglufjarðar heldur en frá Siglufirði til Reykjavíkur, hvað veldur er erfitt að segja til um en það má öllum vera ljóst að þetta er í besta falli ósanngjarnt.
Pistil Róberts má sjá hér: Er verið að mismuna aðildarfélögum innan KSÍ?

Athugasemdir