föstudagur 30. júlí 2010 04:17

SKSiglo.is

3. fl. ka. KS/Tindastól/Hvöt gerði góða æfingarferð til  Reykjavíkur um síðustu helgi. Leiknir voru tveir leikir, sá fyrri á föstudagskvöldið gegn lærisveinum Sigga Helga í Gróttu og unnu okkar drengir 3-5. Seinni leikurinn var leikinn á laugardeginum gegn Val en honum lauk með sigri okkar manna 0-5. Ljóst er að liðið er að smella betur og betur saman enda búnir að spila 12 æfingaleiki í vetur og fara á eitt mót.

Fréttir

Góð úrslit í æfingaferð

3. fl. ka. KS/Tindastól/Hvöt

Þetta var frábær ferð í alla staði, spilað var  við bestu aðstæður. Drengirnir stóðu sig vel og voru vel studdir af nokkrum áhorfendum en Sigurður Helgason var þar fremstur í flokki í leiknum á móti Val en eins og máltækið segir einu sinni KS-ingur alltaf KS-ingur.

Það eru ekki slæmar aðstæður á Gróttuvellinum.

Mottumaðurinn með KS-hjartað, meistari Sigurður Helgason.

Góð upphitun er gulli betri.

Ekki voru aðstæðurnar slæmar heldur á Valsvellinum.

Góðum sigri verður að fagna vel.

Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn